Songtexte.com Drucklogo

Yfir borgina Songtext
von Valdimar

Yfir borgina Songtext

Ó hve ég er orðinn einn
En fel það fyrir þér.
Hljótt harm minn ber.

Veit hvað gerir mér gott en illa get
Hætt við götunnar seið.
Eyk mína neyð.

Ég reika af stað en þungt er skref
því sprottið upp hefur borg.
Með mannlaus torg.

Sem birgir mér sýn og heftir för
Húsin hratt fjölga sér.
Ég fastur er.


Ef ég gæti komist út til þín
Yfir borgina
Og fundið leið.
Til að komast aftur heim til þín
í gegnum borgina
ég brýt mér leið.

Reyni að elta þann veg sem vinsæll er
En flljótt hann leikur mig grátt.
Ég tapa átt.

Ó hve ég er orðinn einn
Vildi ég væri með þér.
Nú harm minn kveð.

Ef ég gæti komist út til þín
Yfir borgina
Og fundið leið.
Til að komast aftur heim til þín
í gegnum borgina
ég brýt mér leið.

Ef ég gæti komist heim til þín
Yfir borgina...

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Valdimar

Quiz
Welcher Song ist nicht von Robbie Williams?

Fans

»Yfir borgina« gefällt bisher niemandem.